Velkomin
BetraSkor heldur utan um tölfræðina þína í golfinu.
Allir vellir innan GSÍ eru í kerfinu. Kerfið heldur utan um hluti eins og hittar brautir og hittar flatir, fjöldi pútta, fjöldi hola leikna á fugli, pari o.s.frv. ásamt fleiri atriðum. Einnig er hægt að skrá æfingar og markmið. Hægt er að sjá flest atriði á myndrænan hátt.
Til að vera með þarftu aðeins að skrá þig. Upplýsingar um þig eru ekki látnar öðrum í té. Aðgangur er ókeypis.
Nýjungar í BetraSkor fyrir sumarið 2012
Tilraun í gangi með nýjan möguleika á síðunni, þann möguleika að geta deilt hringjum með öðrum, vinum, kunningjum og þ.h. Það virkar þannig að þegar hringur er skráður er hakað við "Deila hring" og þá kemur í næsta skrefi hlekkur á hringinn sem hægt er að deila með öðrum. Til að deila eldri hringjum er einfaldlega farið í að breyta hring og þá kemur sama niðurstaða.
Einnig er núna loksins kominn upplýsingasíða fyrir hvern hring, en ekki bara heildartölfræði eins og verið hefur.
Endilega látið vita hvernig ykkur líst á þetta, annað hvort í tölvupósti eða á Betraskor síðunni á Facebook